Sérhvern dag kemst ég varla á fætur Í dagsins amstri er ég sem lokuð bók Hugur minn þungur og illa hann lætur Heyrðir þú kippinn sem hjarta mitt tók? Góða vini ég sé ekki lengur Tímarnir breytast og mennirnir með Svona er víst lífið það er eins og gengur Tilveran taflborð og ég er svart peð Loks hef ég ástæðu til að fara á fætur Því nú hef ég þig og þú hefur mig Ég velti oft fyrir mér hvert við öll stefnum Í fréttum endalaus dauði og sorg Öll loforðin sem að aldrei við efnum Gætu fyllt öll okkar stræti og torg Í okkar heimi er ekkert heilagt lengur Stríð eru háð og börn svelta enn í hel Uppskrift að hamingju Ást og kærleikur Núna er tíminn Það vitið þið vel Loks hef ég ástæðu til að fara á fætur Því nú hef ég þig og þú hefur mig Loks hef ég ástæðu til að fara á fætur Því nú hef ég þig og þú hefur mig