Hvar sem ég vakna Og hvert sem ég fer Er hún sú eina Sem vakir með mér Ljósið mitt bjarta Sem lýsti mér leið Hún vermir mitt hjarta Er engill í neyð Hvert sem ég fer Hvar sem er Vakir hún ein með mér Í gegnum öll stríð Í stormi og hríð Stúlkan sem enginn sér Tíminn var okkar En leið allt of fljótt Og lítið sem lokkar í niðdimmri nótt Því nú er hún farin Og kemur ei meir En minningin lifir Og aldrei deyr Hvert sem ég fer Hvar sem er Vakir hún ein með mér Í gegnum öll stríð Í stormi og hríð Stúlkan sem enginn sér Ef aðeins ég mætti Nú eilitla stund Í köldu svartnætti Fá einn endurfund Með mér mun hún vaka Hún getur mig sótt Því sárin ei þjaka í eilífri nótt