Það heyrist í sjónum en ekki í þér Hvíslum í símann svo að orðin hagi sér Andardráttur og öldur haga sér eins Eins og kvíðinn og veðrið á vorin Þegar krían heldur að hún sé miðja heims Þær kenna ungunum að fljúga með því að kveðja í smá Sjá hvort þeir elti eins og við gerum til skiptis og hringjumst á Hittu mig þar sem höfin mætast Ekki sofna alveg strax Öfugir skór ganga í öfuga átt Eins og kvíðinn og veðrið á vorin Þegar krían heldur að hún sé miðja heims Þær kenna ungunum að fljúga með því að kveðja í smá Sjá hvort þeir elti eins og við gerum til skiptis og hringjumst á Þú bannar mér að banna þér að sofna á undan mér Þú bannar mér að banna þér að sofna á undan mér Þær kenna ungunum að fljúga með því að kveðja í smá Sjá hvort þeir elti einsog við gerum til skiptis og hringjumst á Þær kenna ungunum að fljúga með því að kveðja í smá Sjá hvort þeir elti einsog við gerum til skiptis og hringjumst á