Ef dagurinn í dag væri lagður Með draumum sínum frá í gær. Sem fórn í þinn faðm og sagður Færa það ókomna nær. Ef ástin og sorgin eru systur Sem sverja þér tryggð og lofa. Á krossinum vísast verðurðu kysstur Ef þú vakir meðan aðrir sofa. Þitt nafn þekur eina ævi Endalaust, það merkir ekki neitt. Svar mitt glaður ég gæfi Gæti ég einhverju breytt. Þín móðir fann sér félaga við hafið Og í fangi hans öruggan heim. Því æsku sína í sandinn hafði grafið Sína tungu og slavneska hreim. Þegar skuggarnir í dögun dansa Og dagurinn kemst ekki inn. Þá flétta gamlar konur kransa á kumblið gráta í annað sinn. Þitt nafn þekur eina ævi Endalaust, það merkir ekki neitt. Svar mitt glaður ég gæfi Gæti ég einhverju breytt.