Bak við augun eru myndir og ég minnist einatt þín Í máðum tarotspilum. Þar sem skugginn snertir ljósið þar liggur æska mín Í löngum og dökkum skilum. Ég er bara ég, bíðandi eins og er Brosandi meðan þú sefur. Einn daginn, ég vona, vaknar þú í mér Þá veit ég hvað þögnin hefur. Í skautinu þínu mjúka eru draumar sem draga mig Dauður þar á ég heima. Kossar varir rífa og rósir blóðga þig Raddir burt mig teyma. Ég er bara ég, bíðandi eins og er Brosandi meðan þú sefur. Einn daginn, ég vona, vaknar þú í mér Þá veit ég hvað þögnin hefur. Bak við bænir þínar herrann á himnum bíður þín Með hjartafylli af syndum. Spor okkar ég leita í gleri gluggans rósin mín Ef gæfuna þar við fyndum. Bak við þykka nóttina býr næturstjarnan mín Njörvaður ég þrái kulsins svala. Ég ríf mér gat á húmið og ég hvísla inn til þín Haustið er lagst í dvala. Ég er bara ég, bíðandi eins og er Brosandi meðan þú sefur. Einn daginn, ég vona, vaknar þú í mér Þá veit ég hvað þögnin hefur.