ég heyri fótatak það færist nær og nær í mínu tómarúmi Tungl í næturhúmi ég heyri andartak En það er enginn hér þó ertu komin til mín Líkt og ljós í myrkri ég læt aftur augun Ekkert er sem sýnist Aðeins þú Og agnarlítil, óteljandi nú Allt útilokað, athafnir og orð Mín fleyga ímyndun Fær bjargað mér Jafn ótrúleg og fullkomin Er engin nema ímyndunin ein það er of margt að sjá Og þú ert opin bók það sem í þig er skrifað Allt ég fæ upplifað þú gefur hlutum líf Og hreyfir fjöll úr stað ég reyn'að halda í þig Ganga sífellt lengra Gera óljós skilin Milli draums og veru Aðeins þú Og agnarlítil, óteljandi nú Allt útilokað, athafnir og orð Mín fleyga ímyndun Fær bjargað mér Jafn ótrúleg og fullkomin Er engin nema ímyndunin ein Er engin nema ímyndunin ein Er engin nema ímyndunin ein