Næsta lag heitir gagntekinn. Þó ég sjái ár og aldir líða Og öll þessi tár. Þó ég brenni brýr, mig fer að svíða í gömul sár. Því það sem býr bakvið tjöldin Blæs í gamlar glæður óóó Sagan er skrifuð á spjöldin Og þar segir frá hver ræður yfir mér. Ég er gagntekinn af þér. Ég flýt á eftir þér að feigðarósi Og ákafur er því gamalt verður nýtt í nýju ljósi þá næ ég þér En ég er ekkert að þreytast Og rifja upp gamlar syndir óóó það er eitt sem aldrei mun breytast ég sé allar þínar myndir fyrir mér ég er gagntekinn af þér ég vek upp gamlan draug á hverjum degi Af örlagahaug Minningin um þig er tómur tregi Og slitin taug En ég er ekkert að kólna Og gamla skrímslið lifir óóó það er alltaf eitthvað að bólgna Svo til endalaust og ræður yfir mér ég er gagntekinn af þér