Tækifærið birtist Yfirgefið eitt. Ég var annars hugar Eins og yfirleitt. Lét það fara, En áður en það hvarf það hvíslaði að mér: "Komd'og náð'í mig, ég er. Komd'og náð'í mig, ég fer. Komd'og finndu mig." Loksins kom það aftur Eftir langa bið. En um leið þó sýndi á sér fararsnið. Og það hvaddi, í sömu andránni það hvíslaði að mér: "Komd'og náð'í mig, ég fer. Komd'og náð'í mig, Frá þér. Komd'og finndu mig." Það hefði dugað lítið augnatillit, Einhver hreyfing, útrétt höndin. Það var að bíða eftir einu orði, Andardrætti, Ekkert gerðist. Það fór. Það fór. Það fór. Tækifærið birtist Yfirgefið eitt. Ég var annars hugar Eins og yfirleitt. Lét það fara, En áður en það hvarf það hvíslaði að mér: "Komd'og náð'í mig, ég er. Komd'og náð'í mig, ég fer. Komd'og finndu mig."