Svífur yfir Esjunni sólroðið ský, Sindra vesturgluggar, sem brenni í húsunum. Viðmjúk strýkur vangana vorgolan hlý, Vaknar ástarþráin í brjóstum á ný. Kysst á miðju stræti er kona ung og heit, Keyra rúntinn piltar, sem eru í stelpuleit, Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar. Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík. Tjörnin liggur kyrrsæl í kvöldsólarglóð Kríurnar þótt amstri og bjástri í hólmanum. Hjúfra sig á bekkjunum halir og fljóð, Hlustar skáldið Jónas á þrastanna ljóð. Dulin bjarkarlimi á dúnsins mjúku sæng Dottar andamóðir með höfuð undir væng. Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar. Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík Kysst á miðju stræti er kona ung og heit Keyra rúntinn piltar, sem eru í stelpuleit, Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar. Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík. Reykjavík Reykjavík Reykjavík Reykjavík