Erfitt er að reyna að segja þér Frá því sem bærist inní mér. En ég veit þú kannski skilur þá þögnina sem ég hef reitt mig á. Orðin hrannast upp hjá mér þvælast um mitt hugarþel. Á þeim litla stjórn ég hef Síst að láta bitna á þér. En ég verð að ná Að koma böndum þessar hugsanir Sem illa leika mig. ♪ Mér bregður ögn Að heyra rödd mína því loks hef ég rifið þögnina. Lítið bros eða snerting ein Getur læknað þetta hugarmein. Orðin hrannast upp hjá mér þvælast um mitt hugarþel. Á þeim litla stjórn ég hef Síst að láta bitna á þér. En ég verð að ná Að koma böndum þessar hugsanir Sem illa leika mig. ♪ Léttir þokunni Batnar útsýnið. Alltof lengi gekk ég án þess að sjá. Alltof lengi ég Gekk þér frá. ♪ Út úr þögninni Ráfa leitandi. Ósköp dýrmætt það er Mér að sjá Birtuna sem lýsir þér frá. ♪ Burt frá auðninni, Núna teymir mig. Ósköp dýrmætt það er Mér að fá Að eiga leiðir er til þín ná.