Lyftuklefinn, lengst í himininn Loftandin þöglu pari Hurðin víkur, hrúgast inn Hóstandi, hálsbólginn skari Starað niðrí gólf, orðum kyngt Spegillinn sniðgenginn Augnablikið er farið Hm hm hm hm hm hm Hm hm hm hm hm hm Og svo kom inn einn sem blístraði lag Dröslandi' inn stóreflis tösku Glotti og bauð öllum góðan dag Gjallandi málrómi' og röskum Og á hverri hæð týndist út Uns okkar maður einn af stút Fékk sér úr örsmárri flösku Hm hm hm hm hm hm Hm hm hm hm hm hm Ó, að standa þögul hlið við hlið Og standa kyrr, en færast til Niður og upp, aldrei fram á við Pompar létt af stað, heyrist brak Í þyngdarleysi andartak Í vél sem að fall þitt er falið Hm hm hm hm hm hm Hm hm hm hm hm hm Hm hm hm hm hm hm Augnablikið er farið