Kishore Kumar Hits

Egó - Dauðakynslóðin текст песни

Исполнитель: Egó

альбом: Í mynd (Sérútgáfa)


Þú fæðist inní þennan heim,
Allir þig lofa og prísa.
Umhyggja, ásthúð, er bleyjan hrein,
Í myrkrinu átt þú að lýsa.
Lítill drengur gleymdi sér,
Að heiman hverfur styggur.
Inní draumalandið einn hann fer,
Þú horfir á eftir hryggur.
Það fyrsta sem skólinn kenndi þér
Voru boðorðin tíu.
Á kostnaði þinn kennarinn skemmti sér,
Skólinn átti enga hlýju.
Og presturinn sagði okkur sögu hans,
Þess á krosinum þú veist.
Vakti upp hatur í trylltum dans,
Þegar á Júdas fyrst þú leist.
Allt sem okkur var kennt og heilagt var
Virtist kalla á fleiri svör.
Sannleikurinn, fannst hann þar,
Eða var hann lygi á hvers manns vör.
Hnefaréttinn við lærðum að þekkja,
Í stórborg með engin lög.
Við lærðum að ljúga, svíkja og blekkja,
Sváfum hjá í dimmri gröf.
Andlegt fóður við fengum á prenti,
Endirinn gat komið í dag.
Hvur var sá sem lífi sínu henti,
Söng síðan dauðanum lag.
Allt var falt fyrir seðla, gull,
Þú vissir best um það.
Yfir gröf þinni flaug lítill fugl,
Vindurinn fyrir sálum bað.
Firringin jókst frá degi til dags,
Ungt fólk missti móðinn.
Raddir bárust handan hafs,
Við erum dauðakynslóðin
Sofðu rótt
Sofðu rótt
Sofðu rótt
Sofðu rótt

Поcмотреть все песни артиста

Другие альбомы исполнителя

Egó

1984 · альбом

Похожие исполнители

Papar

Исполнитель

GCD

Исполнитель

Megas

Исполнитель