Nýkominn af sjó Launin eru í lómi Framundan er frí Og veðrið, það er rjómi Bíllinn orðinn klár Í bakpokanum Sómi Skrúfum niður rúður Olnbogarnir út Aftursætisvinirnir í landa' á flöskustút Splunkunýjir hátalarar að spýta út miklu betri hljómi Við ætlum Fimm að fara saman hringinn Og Fordinn er alveg drekkhlaðinn Við förum saman hringinn Og hrellum öll fúlu tjaldsvæðin Við förum saman hringinn Og dettum svo í það fyrir Rúmlega allan ferðapeninginn Komnir út úr bænum Palli orðinn veikur Byrjaður að stíga Upp úr húddi reykur En áfram þessi hópur Heldur hvergi smeykur Vatnskassanum brynni andlega með þeim Vodkaflösku sem var eftir fyrir helgi eða tveim Í Borgarnesi óvæntur og bráðfallegur sjoppustelpusleikur Við ætlum Fimm að fara saman hringinn Þótt Fordinn sé ekki í gallanum Við förum saman hringinn Og stefnum á ball í Sjallanum Við förum saman hringinn Þótt gleymt höfum allir ýmist Tannburstum eða tjald og svefnpokum En gamanið kárnar á Holtavörðuheiðinni Því helvítis demparinn fór Við höldum samt ótrauðir lóðbeinu leiðinni Lögbrotaviljinn er stór Ef óhljóðin hækka, við hækkum í græjunum Og harðir við syngjum í kór Við setjum í diska með Húsvirskum hálfvitum Og hátt við öskrum með þeim "Bjór, meiri Bjór!" Við ætlum Fimm að fara saman hringinn Þótt Fordinn sé ekki að halda sér Við förum saman hringinn Og kannski við finnum Kópasker Við förum saman hringinn Þótt dekk hafi sprungið þar og hér Við höldum áfram hvernig sem fer Við ætlum Fimm að fara saman hringinn Þótt Fordinn sé löngu útbræddur Við fórum saman hringinn Sem varð reyndar aldrei hálfhringur Við fórum aldrei hringinn Því bæði var bíllinn Og hver einasti maður Handónýtur