Ég er hér og þú ert þar Og sjónvarpsbláminn alls staðar Þú ert þar og ég er hér Og mig langar til að segja þér... En öllum hinum er sama. Ég er hér og þú ert þar Og djöfullinn sjálfur alls staðar Þú ert þar og ég er hér Og ég er í þann veginn að segja þér; Að öllum hinum sé sama – Þó ég elski þig. Svo fer að rigna Og þrælrafmagnað loftið brestur við bætt skilyrði Í sjónvarpinu kyssir karlinn með byssuna Konuna, sem gerir endalausu skyssuna – En okkur virðist bara standa á sama.