Kishore Kumar Hits

Biggi Maus - Ekki vera að eyða mínum tíma текст песни

Исполнитель: Biggi Maus

альбом: Ekki vera að eyða mínum tíma


Ég vona að,
þú getir fundið sátt við það,
Að fjallið hreyfist ei,
Eftir þinni skoðun.
Ég vil þér vel,
En haggast ekki, því ég tel,
Að sannleikanum fylgi sjaldnast boðun.
Þú gætir virt mín mörk,
En kýst frekar að reyna á mín takmörk,
Gerir grín að viðbrögðum og trú,
Segir að ég misskilji þig nú.
Ég hleypi þér hér inn,
þú reynir að selja mér guðdóm þinn.
Nei, ekki vera að eyða mínum tíma.
Í hjartað fórstu inn,
En nú virkarðu andsetinn.
Nei, ekki vera að eyða mínum tíma.
Ég á mitt speis,
Mér finnst þú vera ókurteis,
Reynir öllu að hagræða,
Eins og allt sé þín andstæða.
Þú spilar inn
á kærleika og samhug minn,
Að ég rétti alltaf hjálparhönd,
Sem þú slítur af við liðbönd.
Ég hleypi þér hér inn,
þú reynir að selja mér guðdóm þinn.
Nei, ekki vera að eyða mínum tíma.
Í hjartað fórstu inn,
En nú virkarðu andsetinn.
Nei, ekki vera að eyða mínum tíma.

Поcмотреть все песни артиста

Другие альбомы исполнителя

ID

2006 · альбом

Похожие исполнители

HAM

Исполнитель

Maus

Исполнитель

Megas

Исполнитель