Söngvarinn er dauður og draumarnir farnir Dýrlingur að fæðast með andlit skotið burt. Þeir sem fóru á undan áttu sama drauminn í aulaklúbbnum á himnum var ekkert auga þurrt. Því aulaklúbburinn bíður þín En þar er enginn gítar og ekkert vín Aðeins frasar og myrkrið svart Aðeins frasar og myrkrið svart. Að gefast upp er auðvelt setjast aðeins niður Opna síðan munninn og vorkenna sér. Bryðja blús í pillum og gráta eigin örlög Er það besta sem þú gerir áður en þú leggur af stað. Því aulaklúbburinn bíður þín En þar er enginn gítar og ekkert vín Aðeins frasar og myrkrið svart Aðeins frasar og myrkrið svart. Að klifra upp á toppinn og týna öllum áttum Er tækifæri sem margur aulinn þráir heitt. Fara þeir sem vilja verði þeim að góðu Veröldin heldur áfram ósnert, óbreytt. Því aulaklúbburinn bíður þín En þar er enginn gítar og ekkert vín Aðeins frasar og myrkrið svart Aðeins frasar og myrkrið svart.