Það líða ár, það myndast gjár Því tíminn ekki bíður Það drjúpa tár í opin sár Því sársaukinn þig svíður Sársaukinn þig svíður En veistu að þú átt, þú átt þitt val Ræður aleinn ríkjum Konungur í hugarins sal Þó við hin svíkjum endalaust Ekki kikna Þó draumarnir drukkni einn og einn Ekki blikna Þó vegurinn sé ei beinn Það birtir til ef að er gáð Þú stjórnar því víst sjálfur Þó tímabil sé þyrnum stráð Og lífið orðagjálfur Það birtir til ef að er gáð Þú stjórnar því víst sjálfur Það líða ár, það myndast gjár Því tíminn ekki bíður Það drjúpa tár í opin sár Því sársaukinn þig svíður Sársaukinn þig svíður En veistu að þú átt, þú átt þitt val Ræður aleinn ríkjum Konungur í hugarins sal Þó við hin svíkjum Það birtir til ef að er gáð Þú stjórnar því víst sjálfur Þó tímabil sé þyrnum stráð Og lífið orðagjálfur Það birtir til ef að er gáð Þú stjórnar því víst sjálfur Þetta er þitt líf Þetta er þitt líf Þetta er þitt eigið líf Sannleikann sjáðu Og trúna á þig fáðu á ný