Er fósturjörðin felur sig í hrími
Og frostrósirnar eini gróðurinn,
Mér dettur oft í hug sá dásamlegi tími
Er dvaldi ég í paradís um sinn.
Á Jamaica eru dætur lands,
þar dróg mig ein í burtu er enginn sá.
Á Jamaica er söngur, dufl og dans.
Ég vildi að ég væri þér hjá,
Sem verndaðir mig hákörlunum frá,
þú drauma minna dís síðan þá.
(Jamaica, Jamaica, Jamaica, Jamaica)
Alltaf þegar komið er að kveldi
Og kuldahrollur fer um hjartarót
ég ylja mér af minninganna eldi
Er man ég þig og ástar þinnar hót.
Á Jamaica eru börnin ber
Og bert er jafnvel kvenfólkið þar.
Á Jamaica þar engin sorgin er,
Tungl og sólin merla mar,
Minnisstætt er æ þitt svar
Er bað ég þig að bíð'eftir mér.
(Jamaica, Jamaica, Jamaica, Jamaica)
Á Jamaica eru dætur lands,
þar dróg mig ein í burt'er engin sá.
Á Jamaica er söngur, dufl og dans,
ég vildi að ég væri þér hjá,
Sem verndaðir mig hákörlunum frá,
þú drauma minna dís síðan þá.
(Jamaica, Jamaica, Jamaica, Jamaica)
Á Jamaica eru börnin ber
Og bert er jafnvel kvenfólkið þar.
Á Jamaica þar engin sorgin er,
Tungl og sólin merla mar,
Minnisstætt er æ þitt svar
Er bað ég þig að bíð'eftir mér.
(Jamaica, Jamaica, Jamaica, Jamaica, Jamaica, Jamaica)
Поcмотреть все песни артиста