Kishore Kumar Hits

Diddú - Útumholtoghólablús текст песни

Исполнитель: Diddú

альбом: 60 ára


Greiddu mér götu
Gurra mín því fýsn mína fóðrar hin vorbjarta nótt
Greiddu mér götu
Gurra mín því fýsn mína fóðrar hin vorbjarta nótt
Sprúttið skal ég spá í
Spírur á ég nógar alveg gegndar lausa gnótt
Blíðum í blænum
Brosir hún við oss hin margfrægða miðnætursól
Blíðum í blænum
Brosir hún við oss hin margfrægða miðnætursól
Bíddu mín blóminn kvenna
Á bekknum steinsteypta við styttuna uppá Arnarhól
Hljóðlátt er holtið
En í Hábænum iðkaður ómstríður söngur var fyr
Hljóðlátt er holtið
En í Hábænum iðkaður ómstríður söngur var fyr
Ó langt er nú um liðið
Síðan láréttum í hinsta sinn þar verðir mér vörpuðu' á dyr
Á hól eða holti
Hátt uppi firrtur kvöðum og hverri nauð
Á hól eða holti
Hátt uppi firrtur kvöðum og hverri nauð
Um vélráða veröld
Varðaði mig aldrei og aldrei mér neitt hún bauð
Já ævinni að eyða
Við ilm úr glæru glasi og greitt í ljúfustu löð
Já ævinni að eyða
Við ilm úr glæru glasi og greitt í ljúfustu löð
Lífsins amstri og angri
Undanþeginn sem og sérhverri þess kúgandi kvöð
Greiddu mér götu
Gurra mín því fýsnin hún firrir mig allri ró
Greiddu mér götu
Gurra mín því fýsnin hún firrir mig allri ró
Sprútt get ég spáð í
Af spírum á ég ókjör margfalt meira en nóg

Поcмотреть все песни артиста

Другие альбомы исполнителя

Похожие исполнители

Laddi

Исполнитель