Túra – lúra – ligga – lobb Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb Er ég fór á sjó með Sigga Nobb Og Sigga Jóns og Steina Túra – lúra – ligga – lobb Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb Er ég fór á sjó með Sigga Nobb Og Sigga Jóns og Steina Genginn var á Gerpisflak Sprotafiskur með sporðablak Og okkur langaði út á skak Ekki' er því að leyna Ég segi alveg satt frá því Að komist við höfðum aldrei í Annað eins feikna fiskerí Frá því skal nú greina Hann stökk á krókana rið í rið Og gaf okkur aldrei grunnmálið Já, handóður, bandóður var hann við Og veitti' ei miskun neina Í hverjum drætti strollan stóð Og vaðbeygjur sungu af vígamóð Og seinast var skipshöfnin orðin óð Ekki' er því að leyna Túra – lúra – ligga – lobb Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb Er ég fór á sjó með Sigga Nobb Og Sigga Jóns og Steina Túra – lúra – ligga – lobb Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb Er ég fór á sjó með Sigga Nobb Og Sigga Jóns og Steina Lestin var full og lúkarinn Og bísna siginn var báturinn Þegar við héldum aftur inn Ekki' er því að leyna Hann gerði hvassa austanátt Og þá var öldunum dillað dátt Og uppi þær höfðu gaman grátt Og gáfu' ei miskun neina En þetta fór nú þannig að Við náðum landi á Neskaupsstað En slembilukka þótti það Því er ekki' að leyna Menn gláptu á okkur gáttaðir Þeir höfðu ekki séð slíka hleðslu fyrr Að við værum allir vitlausir Vildu sumir meina Túra – lúra – ligga – lobb Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb Er ég fór á sjó með Sigga Nobb Og Sigga Jóns og Steina Túra – lúra – ligga – lobb Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb Er ég fór á sjó með Sigga Nobb Og Sigga Jóns og Steina