Nakinn komstu inn í hugarheiminn minn. — Og þér virtist líka það. Sveifstu hreikinn um á Loreal-vængjum. — Þú varst á réttum stað. Hvítur líkaminn, Kirsuberin stinn. — Þú veist mig langar inn. Þú, ég vil vera eins og þú. Því ég, ég er nakinn eins og þú. Undir áhrifum ég hugsa bara um — Að geta verið einn með þér. Nakinn líkamann, ég verð að snerta hann. — Vildi að þú værir hér. Hvítur líkaminn, Kirsuberin stinn. — Þú veist mig langar inn. Þú, ég vil vera eins og þú. Því ég, ég er nakinn eins og þú. ♪ Óæðri máttarvöld Veittu mér þá ósk Að þú komst í kvöld. Snertu fingurgómana Og haltu höndunum Um þennan líkama. Þú, ég vil vera eins og þú. Því ég, ég er nakinn eins og þú. Þú, ég vil vera eins og þú. Því ég, ég er nakinn eins og þú. Og ég vil vera eins og þú. Ég er nakinn eins og þú.