Taktu mig tómið svarta, Helvíti er miklu betra' en hér. Veggirnir þeir hvæsa' og hvísla, Sjúga allan lífsvilja úr mér. Hrapa í hyldýpi sem engin veit hvar er! Hættu, slepptu, gefst upp, ég get ekki meir. Hræddur, tættur, særður, Allt fölnar og deyr. Sérðu tárin þau renna, þau brenna, þau renna og brenna, líkt og glært klórín. Sleiki sárin, sálin klofnar, Tungan dofnar, þú ert kókaín. Sama hvar og hvenær og hvernig, þú verður alltaf mín! Hættu, slepptu, gefst upp, ég get ekki meir. Hræddur, tættur, særður, Allt fölnar og deyr.