Erla, góða Erla Ég á að vagga þér Svíf þú inn í svefninn Í söng frá vörum mér (vörum mér) Kvæðið mitt er kveldljóð Því kveldsett löngu er (löngu er) Kvæðið mitt er kveldljóð Því kveldsett löngu er Úti þeysa álfar Um ísilagða slóð Bjarma slær á bæinn Hið bleika tunglskinsflóð Erla, hjartans Erla Nú ertu þæg og góð Erla, hjartans Erla Nú ertu þæg og góð ♪ Hart er mannsins hjarta Að hugsa mest um sig Kveldið er svo koldimmt Ég kenndi í brjósti um mig Dýrðlega þig dreymi Og drottinn blessi þig (Blessi þig) Dýrðlega þig dreymi Og drottinn blessi þig ♪ Drottinn blessi þig (Drottinn blessi, drottinn blessi þig)