Skotta niður skarð Skautar yfir barð Illit í hyggju hefur Heimafólkið sefur Daginn áður dafnaði friður En dó svo á einni nóttu Mildur þeyrinn á midnætti Var orðinn mannskaðaveður á óttu Vorið flúði vinda að handan Og varga af öðrum heimi Draugagangur i dalverpinu Nú er dauðinn sjálfur á sveimi Nú er dauðinn sjálfur á sveimi Frost, þú mátt festa þinn Fjötur við húsvegginn Kynngi min kælir þil Kæfandi ljós og yl Skotta finnur skjól Skriður yfir hól Hallar sér í holu Herðir frost með golu Skotta húkir skammt fyrir ofan Er skundar hann niður datinn Blæs í frostið, blóðar á siðu Hann er beygður maður og kvalinn Gegnum litla glufu á veggnum Hún gægist inn úr snænum Draugur leikur við dreng og stúlku Nú er dauðinn sjálfur á bænum Nú er dauðinn sjálfur á bænum Frost, þú mátt festa þinn Fjötur við langeldinn Kynngi min kæfir glóð Krókna þá menn og fljöð Ber hann þreyttur bál i kotið Bæjargöngin gengur köld Þróttur horfinn, þrekið brotið Þetta eru málagjöld Hlýnar mér er halir falla Hatur nærir draugaþý Heyrist Skottu kjaftur kalla: "Kveikir þú upp eld á ný?" Skotta Skotta