Niðavellir, náhvítur máninn skín. Dvergahellir, dulúð þér villir sýn. Sindradætur, synir og börnin öll, Vetrarnætur, verma þau klettafjöll. Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa Hér er gott að sofa Galdrastafir, grafnir í stóran stein, Dvergagrafir, dysjar og gömul bein Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa Hér er gott að sofa Trónir á mergi tinnugler, Tindar úr bergi háir Sindri og Hergill halla sér, Hér sofa dvergar gráir Heyr, mín kæra hefðarfrú, Hér er gott að sofa Á sig taka náðir nú, Niðahjón og börnin þrjú Þegar heyrist þrumugnýr, Þór við skulum lofa Okkur geymir hellir hlýr, Hér er gott að sofa Náinn syngur næturljóð, Núna sefur dvergaþjóð.