Kishore Kumar Hits

Fferyllt - A Sprengisandi текст песни

Исполнитель: Fferyllt

альбом: Achanterez


Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn,
Rennur sól á bak við Arnarfell,
Hér á reiki er margur óhreinn andinn,
úr því fer að skyggja á jökulsvell;
Drottinn leiði drösulinn minn,
Drjúgur verður síðasti áfanginn.
Drottinn leiði drösulinn minn,
Drjúgur verður síðasti áfanginn.
Þey þey! þey þey! þaut í holti tófa,
þurran vill hún blóði væta góm,
Eða líka einhver var að hóa
Undarlega digrum karlaróm;
útilegumenn í Ódáðahraun
Eru kannske að smala fé á laun.
útilegumenn í Ódáðahraun
Eru kannske að smala fé á laun.
Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
Rökkrið er að síða á Herðubreið,
álfadrottning er að beisla gandinn,
Ekki er gott að verða á hennar leið;
Vænsta klárinn vildi ég gefa til
Að vera kominn ofan í Kiðagil
Vænsta klárinn vildi ég gefa til
Að vera kominn ofan í Kiðagil

Поcмотреть все песни артиста

Другие альбомы исполнителя

Похожие исполнители

Vanir

Исполнитель