Hún var alin upp til þess að giftast Liggja á bakinu og fjölga sér. Hún var alin upp sem aristókrat dama Uppá punt til að þóknast þér. Þau búa í 3ja hæða villu Dreymir um myndir eftir van Cogh Eru með sænska au pair sem kallar sig Lillu Reykir gras og hlustar á rokk. Hún drepur tímann malandi uppí sófa Les reyfara og dreypir á Bristol Cream Virðir fyrir sér myndir eftir Alfreð Flóka Hugleiðir hvort karlmenn séu svín. Í boðum er hún hans stoð og stytta Spjallar um bókmenntir og sjaldgæf vín Kona sem þig dreymir um að hitta Kona sem gefur blindum sýn. Hún virðist vera hamingjusöm kona Sem á nóg af öllu, alltaf frí Samt hún skríður um með klafann á baki Hennar heimur er fyrir mér botnlaust dý.