Hún var ölvuð á almannafæri, Lokuð inni fyrir ólæti Fram að hádegi. Ég var ölvaður á almannafæri, Tekinn fastur fyrir óheppni Og lokaður inni með henni. Sópast að mér svartklæddir menn, Pólitíið grípur mig aftur og enn. Læst inn í sama klefa, Líkar það þokkalega vel, Ekki hleypa okkur út. Sofum í sama klefa Liggur svo ágætlega á mér, Ekki hleypa okkur út. Hún var ölvuð á almannafæri, Var föst uppi á húsþaki, í fáförnu úthverfi. Ég ætlaði að reyna að hjálpa henni, En festist líka á leiðinni Og hékk í þakrennunni. Sópast að mér svartklæddir menn, Pólitíið grípur mig ef ég renn. Læst inn í sama klefa, Líkar það þokkalega vel, Ekki hleypa okkur út. Sofum í sama klefa Liggur svo ágætlega á mér, Ekki hleypa okkur út.