Um leið og ég vakna Ég sest upp og sakna Vina minna og allra hinna Óteljandi mismunandi andlitanna Ég lýsi mig sekan Um að láta allt reka Á reiðanum og eyða öllum mínum Tíma í afþreyinga sýndarheimi Ásjóna mín er Opin og ber Ég sýni þér Mitt rétta andlit Þú svona lokuð og þver En svipurinn Er fullkominn Í andlitsbókhaldið Ég engist og iða Í angist og sviða Í einskismannslandi Í fjarskanámi sýndarveruleikafjarsambandi Á alnetsins enda Ég ætla að senda Fyrirspurnarbeiðni um það að Brúa bilið milli okkar beggja Ásjóna mín er Opin og ber Sýni þér Mitt rétta andlit Þú svona lokuð og þver En svipurinn Er fullkominn Í andlitsbókhald Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ah (ah) Ég hefði haldið Að andlitbókshaldið Léti mér leiðast þó mér langaði að Koma aftur heim í veruleikann Heim Veruleikaheim Heim til þín Heim til þín