Órum fjarri bakvið fjöllin há Feimnum höndum liggur ekkert á Í leit að löngu gleymdum sannleiksorðum Stöðva tímann, vekja tillit eitt Tína af vörum orð sem merkja ei neitt Og þreyja lengst af þögnina sem forðum Það er sama hvar þú ert Þú færð ekkert við því gert Það horfa á þig ótal hulin augu Það er sama hver þú ert Þú færð ekkert við því gert Það horfa á þig ótal hulin augu Fegins hendi allan heiminn á Höndlar með það sem að allir þrá Þó ekki verði alltaf af því sómi Hér er ekkert sem að enginn sér Ekkert sem þú átt með sjálfum þér Í eigin vitund, eigin helgi, tómi Það er sama hvar þú ert Þú færð ekkert við því gert Það horfa á þig ótal hulin augu Það er sama hver þú ert Þú færð ekkert við því gert Það horfa á þig ótal hulin augu